Útihátíð:
Hún verður miðvikudaginn 3.júní. Fyrirkomulag dagsins verður kennsla frá 8:15 til 12:15 og þá hefst útihátíðin með grillpartýi og leikjum. Dagskrá lýkur kl. 14:15. Þess má geta að þetta er síðasti opnunardagur Skóladagheimilisins á þessu skólaári.
Skólaslit:
Formleg skólaslit verða samkvæmt skóladagatali í Félagsheimilinu fimmtudaginn 4. júní. Til að gefa öllum foreldrum kost á að koma með börnum sínum verða skólaslitin tvískipt þ.e. 1. til 6. bekkur kl. 11:30 og 7. - 10. bekkur kl. 12:30. Skólaslitin verða í bíósal Félagsheimilisins á Blönduósi. Ekki er gert ráð fyrir skólaakstri á þessum degi en ef einhver er í vandræðum þá hafið þið samband við skólastjóra (þarf að hafa samband í síðasta lagi fyrir hádegi á þriðjudeginum 2. júní.
|
Við Húnabraut 2a | 540 Húnabyggð Sími: 455-4750 Netfang: hunaskoli@hunaskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
.