Skjólið

Félagsmiðstöðin Skjólið er staðsett í gamla arion banka húsinu á neðri hæð.
Starfsemin er ætluð 10-15 ára ungmennum Húnabyggðar

Skjólið - frístund er opin fyrir 5-10. bekk mánudaga-miðvikudaga frá 14-16 og fimmtudaga 13:45-17

8-10.bekkur
Mánudaga: kl 19:30-21:30
Miðvikudaga kl 19:030-21:30
Annan hvern fimmtudag: Kl 19:30-21:30
Annan hvern föstudag kl. 19:30-21:30 

Opnunartími fyrir 5.-7.bekk er fimmtudaga frá kl 17-19.

7.bekkur má koma í Skjólið með 8.-10.bekk eitt kvöld í mánuð, fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði.

Ýmislegt er í boði fyrir krakkana að gera í Skjólinu og má sem dæmi nefna: Pool, borðtennis, þythokký, frír Wi-Fi aðgangur, 65” snjallsjónvarp og PS5 leikjatölva (engir bannaðir leikir í boði), danssalur með skjávarpa og tjaldi með reglulegum bíó-sýningum og beinum útsendingum, AppleTV með aðgangi að Netflix (engar bannaðar myndir leyfðar) og nýtt hljóðkerfi með DJ græjum.

Á haustin er kosið í Unglingaráð Skjólsins sem er samsett af sjö unglingum úr 8.-10. bekk skólans. Ráðið fundar vikulega og býr til dagskrá fyrir félagsmiðstöðina og skipuleggur ferðalög á vegum Skjólsins.

Það eru alltaf að lámarki 2 starfsmenn á vakt hverju sinni.

Í Skjólinu eru fimm starfsmenn:

Kristín Ingibjörg Lárusdóttir – forstöðumaður

Gísli Ragnarsson - frístundaleiðbeinandi

Harpa Sól Guðmundsdóttir - frístundaleiðbeinandi

Heiðbjört Arnardóttir – frístundaleiðbeinandi

Anton Haraldsson – frístundaleiðbeinandi

Sigurbjörg Birta Jónasdóttir - frístundaleiðbeinandi

Félagsmiðstöðin Skjólið heldur úti facebook síðu og  Instagram síðu þar sem við setjum inn dagskrá og viðburði og ýmislegt annað tilfallandi. Einnig munum við senda dagskránna og aðrar upplýsingar í tölvupósti til foreldra/forráðamanna. Hvetjum ykkur til að skella “like” á síðurnar hjá okkur.