Kynningarfundur fyrir foreldra barna í 1. - 6. bekk verður þriðjudaginn 15. september og fyrir foreldra barna í 7. - 10. bekk verður miðvikudaginn 16. september. Fundurinn hefst í matsal Húnaskóla kl. 17:00 og endar í umsjónarstofum hvers bekkjar. Áætlað er að fundum ljúki kl 18:45 (ekki lengur, en mögulega fyrr).
Dagskrá:
Kl. 17:00
Hugleiðingar um samfélagsmiðla - Hörður Ríkharðsson
Foreldrafélagið og bekkjarfulltrúar. Fulltrúar frá foreldrafélaginu kynna sig og starfið í vetur.
Að sameiginlegum kynningum loknum (þær taka rúmlega hálftíma) fara foreldrar í umsjónarstofur barna sinna.
Til að kynningarnar skili sem bestum árangri er nauðsynlegt að öll börn eigi sinn fulltrúa á foreldrafundinum (að sjálfsögðu best ef báðir foreldrar mæta) og biðjum við ykkur um að láta umsjónarkennara ykkar barna vita hver verður fulltrúi þess á fundinum.
|
Við Húnabraut 2a | 540 Húnabyggð Sími: 455-4750 Netfang: hunaskoli@hunaskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
.