Húnaskóli á tvo vinningshafa í smásagnakeppni Félags enskukennara

Smásagnakeppni FEKÍs (Félag enskukennara) hófst 26. september, á evrópska tungumáladeginum.  Keppnin er haldin ár hvert meðal grunn- og framhaldsskólanema á Íslandi. Þema keppninnar í ár var „Power“. 

Keppt er í 4 flokkum:

  • 5. bekkur og yngri grunnskóli 

  • 6.-7. bekkur grunnskóli

  • 8.-10. bekkur grunnskóli

  • og framhaldsskóli

Hver skóli má senda 3 sögur úr hverjum flokki.

Það var mjög ánægjulegt að Húnaskóli átti tvo vinningshafa í ár: Sigrún Erla Snorradóttir með söguna  "The Flying Family" í flokki 5. bekkjar og yngri og Bella Lind Stenlund  með söguna "The Power of a Horse"  í 6.-7.bekkjar flokki.

Verðlaunaafhending fór fram á Bessastöðum 2. mars 2023. Stelpunum var boðið á þennan viðburð ásamt foreldrum sínum og Sonja Suska, kennara.

Við óskum Sigrúnu Erlu og Bellu Lind innilega til hamingju!!