Útihátíðin var 28. maí og skólaslitin voru haldin 30.maí
Útihátíðin gekk vel fyrir sig og lékum við á blauta rigningarveðrið og höfðum vatnsþema ef svo má segja.
Eldri krakkarnir fóru í vatnsfótbolta og kom slökkviliðið og sprautaði á þau meðan þau spiluðu.
Yngri krakkarnir ásamt elsta árgangnum í leikskólanum fóru í vatnsbyssustríð á sparkvellinum.
Allir vel blautir en glaðir eftir daginn.
Skólaslitin voru svo haldin formleg á föstudeginum 30.maí í bíósal félagsheimilisins.
Eftir formleg skólaslit í félagsheimilinu fór 10. bekkur, foreldrar og aðrir starfsmenn sem komu að 10. bekknum í matsal skólans þar sem þeir voru kvaddir af skólastjóra og öðru starfsfólki skólans.
Starfsfólk Húnaskóla þakkar öllum nemendum og foreldrum þeirra fyrir ánægjuleg samskipti á skólaárinu og vonar að þið njótið sumarsins. Hittumst hress og endurnærð í haust.
Skólasetning verður 21. ágúst nánar auglýst síðar.
Við Húnabraut 2a | 540 Húnabyggð Sími: 455-4750 Netfang: hunaskoli@hunaskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
.