15. september – 6. október
Húnaskóli tekur þátt í Svakalegu lestrarkeppninni 2026, þar sem börn í 1.-7.bekk í skólum um allt land keppast um að lesa sem flestar mínútur.
Markmiðið er að auka lestraránægju barna og kveikja áhuga á góðum og skemmtilegum bókum.
Hvernig geta heimilin tekið þátt?
Hvetjið börnin til að lesa á hverjum degi.
Lesið fyrir yngri börnin.
Skapið notalega stund fyrir lestur heima.
Hvað má skrá?
Yndislestur heima og í skólanum
Hljóðbækur
Lestur á öðrum tungumálum
Lestur foreldra fyrir börn í 1. bekk
Áfram lestur og áfram Húnaskóli!
|
Við Húnabraut 2a | 540 Húnabyggð Sími: 455-4750 Netfang: hunaskoli@hunaskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
.