Páll Óskar kom í heimsókn

Næsta sunnudag, 8. nóvember, er baráttudagur gegn einelti. Lagið hans Páls Óskars og Benna Hemm Hemm, Eitt af blómunum, á svo sannarlega heima í þessari baráttu en eins og fram kemur í textanum “það er alveg nóg pláss í garðinum fyrir þá sem hugsa með hjartanu”.

Áður en Páll Óskar fór á svið þá fengum við elstu tvo árganga leikskólans og 1. og 2. bekk grunnskólans til að fara upp á svið og syngja fyrir okkur Myndin hennar Lísu. Þórunn Ragnarsdóttir spilaði undir á gítar.