Trommuleikararnir Sigurður Ingi Einarsson og Hrafnkell Örn Guðjónsson komu til okkar, á vegum List fyrir alla, á mánudaginn og stýrðu stórskemmtilegri tónlistarsmiðju þar sem aðalhljóðfærið var múrbali. Allir þátttakendur fengu múrbala sem þeir bundu utanum sig og tvo kjuða. Síðan var einfaldlega talið í. Taktar, break, grúv og hreyfingar, auk þess sem skoðuð voru þau fjölmörgu hljóð sem hægt er að ná úr þessum ósköp venjulegu svörtu plastfötum. Þær leyna á sér!
Í lok smiðjunnar var flutt kröftugt tónlistaratriði þar sem afrakstur dagsins kom í ljós.
Við Húnabraut 2a | 540 Húnabyggð Sími: 455-4750 Netfang: hunaskoli@hunaskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
.