Litlu jól Húnaskóla

Miðvikudaginn 20. desember

Litlu jól Húnaskóla verða haldin miðvikudaginn 20. desember.
Þau byrja kl. 12:30 í bíósal félagsheimilisins á Blönduósi. Nemendur 1. -6. bekkjar verða með skemmtiatriði og strax eftir að þeirri dagskrá lýkur verður jólatrésskemmtun í danssalnum. Þar koma allir saman og dansa og syngja í kringum jólatréð. 

Skemmtun lýkur um kl. 14:00.
Við mætum í jóladressinu, prúðbúin.

Allir íbúar Húnabyggðar eru velkomnir.