Við í 10. bekk Húnaskóla, árgangur 2010, viljum þakka kærlega fyrir þann stuðning sem
fyrirtæki og einstaklingar sýndu okkur svo við gætum fagnað því saman að hafa lokið
skólagöngu í Húnaskóla. Við fórum í ferð til Kaupmannahafnar og langar okkur að koma með
smá ferðasögu:
Lagt var af stað sunnudaginn 24. maí með GN hópbílum, farið var á hótel Konvin á Ásbrú og
skelltum við okkur einnig á pítsa hlaðborð. Spennustigið var frekar hátt hjá sumum og því lítið
sofið áður en farið var í morgunmat og svo á flugvöllinn. Þegar út var komið var farið í fyrstu
lestarferðina, en þær urðu þó nokkrar í ferðinni. Við leigðum fimm hótelíbúðir og komum við
okkur þar fyrir. Svo var tekið rölt út að strönd, enda var sólskin og yfir 20 stiga hiti alla dagana í
ferðinni.
Á öðrum degi úti var farið í dýragarðinn þar sem svæðið var skoðað og borðað saman í lokin.
Sumir ákváðu að láta lífga upp á sig með því að fá andlitsmálun. Síðan var haldið á Strikið og
fórum við á tvö söfn. Eftir það var frjáls tími á Strikinu þar sem búðir voru skoðaðar og einhverjir
keyptu gjafir handa systkinum og foreldrum.
Dagur þrjú var hjóladagur. Hjólað var til að skoða Litlu hafmeyjuna og svo fylgst með þegar
vaktaskiptin fóru fram við höllina. Seinni partinn var svo ferðinni heitið á Bakken til að koma
adrenalíninu aðeins af stað. Einnig var borðað saman þar, en við komumst í hlaðborð og var
mjög gott að fá alvöru mat í staðinn fyrir skyndibita. Við vorum ekki komin í íbúðirnar fyrr en eftir
klukkan 22, svo þessi dagur hreinlega flaug áfram.
Dagur fjögur var frjáls dagur þar sem við fengum að gera það sem okkur langaði til. Það var
ýmist skoðað fótboltavöllinn Parken Stadium, kíkt á Strikið, farið á ströndina, nærumhverfið
skoðað eða hvílt sig. Seinni partinn var svo ferðinni heitið í Tívolí þar sem við skemmtum okkur
og borðuðum saman áður en farið var heim.
Á heimferðardegi var gengið frá íbúðunum. Því næst var ferðinni heitið á Den Blå Planet þar
sem við skoðuðum fiska og annað dýralíf. Eftir það var farið á völlinn þar sem við skoðuðum
verslanir vel áður en farið var í vélina. Þegar við komum til Íslands beið Jón Ragnar hjá GN
hópferðum eftir okkur, sáttum og sælum eftir ferðalagið.
Á útskriftardaginn fimmtudaginn 4. júní verður kvöldverð á Teni þar sem við ætlum að fagna
þessum áfanga saman með okkar nánustu, ásamt kennurunum sem hjálpuðu okkur að koma
þessari ferð á laggirnar og skipuleggja dagskrána.
Frá farastjórum:
„ Fyrir hönd okkar fararstjóranna viljum við koma því á framfæri að krakkarnir stóðu sig mjög vel
í ferðinni og fengu hrós fyrir að vera kurteis og flott. Eins viljum við segja að mörg þeirra voru að
fara langt út fyrir þægindarammann sinn, sem á klárlega eftir að hjálpa þeim. Þessi ferð snýst
nefnilega ekki bara um að fagna þeim stóra sigri að ljúka grunnskóla. Hún er líka mikilvægur
grundvöllur fyrir framtíðina. Ferðin sýndi krökkunum að þau eiga enn margt ólært, en með því að
hafa trú og þor til að prófa nýja hluti geta þau nýtt þessa reynslu til að byggja ofan á og takast á
við framtíðina.

|
Við Húnabraut 2a | 540 Húnabyggð Sími: 455-4750 Netfang: hunaskoli@hunaskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
.