Húnaskóli auglýsir eftir starfsfólki fyrir skólaárið 2025 - 2026

Umsjónarkennari á unglingastigi í Húnaskóla

Um er að ræða stöðu umsjónarkennara á unglingastigi 100% staða frá 1. ágúst 2025. Mögulegar kennslugreinar eru enska, íslenska og samfélagsfræði. 

https://alfred.is/starf/umsjonarkennari-a-unglingastigi-i-hunaskola-4

 

Heimilisfræðikennari í Húnaskóla

Húnaskóli óskar eftir kennara í heimilisfræði, 69% staða frá 1. ágúst 2025. 

https://alfred.is/starf/heimilisfraedikennari-i-hunaskola

 

Umsóknum þar sem fram kemur hvaða starf er verið að sækja um skal skilað ásamt kynningarbréfi og ferilskrá í tölvupósti á netfang Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra,  thorhalla@hunaskoli.is. Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 892-4928. Umsóknarfrestur er til 28. maí. 

Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og KÍ.