Gullskórinn afhentur í dag.

Í dag lauk Göngum í skólann verkefninu sem hefur staðið undanfarnar tvær vikur. Að því tilefni var haldin verðlaunaafhending í íþróttahúsinu þar sem allir nemendur og starfsfólk skólans voru saman komnir og eftirvæntingin var töluverð. Allir bekkir stóðu sig vel en að þessu sinni var það 9. bekkur sem hlaut gullskóinn. 8. bekkur var í öðru sæti og 6. bekkur í því þriðja. Þetta er í fjórða sinn sem gullskórinn er afhentur, fyrst í Blönduskóla og núna í annað skiptið í Húnaskóla. 

Þó að verkefninu sé lokið viljum við hvetja nemendur og starfsfólk til þess að halda áfram að nota virkan ferðamáta á leið í og úr skóla (ganga eða hjóla). Eins viljum við minna á að bráðum fer að verða dimmt á morgnana þegar börnin eru á leiðinni í skólann. Þá er mikilvægt að huga að viðeigandi öryggisbúnaði eins og endurskinsmerkjum á útifötin og ljós á hjólin -og auðvitað eiga allir alltaf að vera með hjálm þegar þeir eru á hjóli.