Framsagnarkeppni Húnaskóla 2026

Þann 15. mars tók 7. bekkur þátt í framsagnarkeppni sem haldin er árlega og stór þáttur í íslenskunámi nemenda.

Nemendur stóðu sig afar vel og gaman að hlusta á framfarir þeirra.

Við fengum hæfileikaríka dómara þær Magdalenu Berglindi Björnsdóttur, Magdalenu Margréti Einarsdóttur og Kristínu Guðjónsdóttur til að velja hæfustu nemendurna og eiga þær miklar þakkir skilið.

Úrslit urðu þessi:

Þriðja sætið hreppti Ægir Örn Sighvatsson.

Í öðru sæti var Sigríður Anna Pálsdóttir og Fanndís Alda Birkisdóttir var í fyrsta sæti.

Þessi efstu þrjú sæti fengu peningagjafir; 3 sætið kr. 10.000. 2. sætið kr. 15.000 og 1. sætið kr. 20.000. 

Margir nemendur æfðu vel og eiga hrós skilið fyrir dugnað og seiglu.

Viljum við þakka þeim foreldrum sem hjálpuðu og hvöttu börn sín til dáða heima fyrir.