Snjalltækjasamningur

Snjalltækjasamningur nemenda er fyrir nemendur í 7-10. bekk sem vilja nota eigin snjalltæki í skólanum. Þeir þurfa að skrifa undir samning og virða þær reglur sem settar eru varðandi tækjanotkun í skólanum. Aðgangur að interneti skólans er ætlaður fyrir nemendur sem vilja nota eigin tölvur eða önnur tæki til náms. 

Nemendur og foreldrar samþykkja eftirfarandi reglur:

  • Snjalltæki nemenda eru á eigin ábyrgð, nemendur og forráðamenn eru hvattir til að tryggja tækin.
  • Við alla notkun tækjanna er sýnd virðing og tillitssemi. Það er ólöglegt að setja efni s.s. myndir, hljóðskrár og annað á netið.
  • Við upphaf kennslustundar á að vera slökkt á öllum tækjum eða stillt á hljóðlaust.
  • Tækin eru geymd inn í skáp, ofan í tösku eða í vasa með slökkt á öllum tilkynningum.
  • Þegar kennari leyfir má nota tækin til náms og/eða til að hlusta á tónlist.
  • Nemendum er ekki heimilt að hlaða niður efni í gegnum nettenginu skólans.
  • Engin samskiptaforrit eru opin meðan á kennslu stendur.
  • Nemendur fara einungis á vefsíður við hæfi aldurs þeirra og þroska.
  • Tækin eru ekki notuð í matsalnum á matmálstímum.
  • Nemendur eru sammála um að nota ekki annarra manna tæki án leyfis.

Samningurinn er endurskoðaður eftir þörfum í samvinnu við nemendur.

Við brot á þessum reglum er viðkomandi tæki komið í vörslu skólastjórnenda. Forráðamenn geta síðar nálgast tækin hjá þeim.

Snjalltækjasamningur nemenda